Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
2.6.08
Jæja, verkefnið sló í gegn svo ég er komin í sumarfrí og komin með BSc. Industrial design. Ætla að taka næstu önn í praktík og er því á útopnu við að reyna að finna spennandi teiknistofur hér og þar í Evrópu. Ef ekkert spennandi dúkkar upp þá er ég innrituð í masterinn í Aalborg. Ef eitthver er með hugmynd að eitthverju betra plani þá er ég svosum líka alveg til í það.
En næst á dagskrá er Kína og Japan - Shanghai 6.06, Tokyo 20.06, Beijing 26.06 og að lokum Reykjavík 3.07.
Annars var Edda í heimsókn um helgina, það var rosa stuð. Ef eitthver er á svæðinu í vikunni þá er sá hinn sami líka velkominn í heimsókn.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 20:41