Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
31.10.07

Ég var að gramsa í myndunum mínum um daginn. Eða kannski frekar klikka í gegnum gömul albúm á harðadisknum. Þar fann ég þessa. Hún gladdi. Þegar ég segi barnabörnunum sögu ætla ég að draga hana fram og hnýta svaðalegustu kúrekarokksögu mið-Ameríku við. Og vera þá helst búin að fótósjoppa dautt naut í bakgrunninn.
Myndin er af mér og Aðalbjörgu, tekin í Guatemala 2004. Þarna vorum við nýkomnar frá kúrekabænum Chiquimula þar sem við höfðum sankað að okkur góssi, kúrekastígvélum úr hundaskinni, sporum, höttum ofl. Heimilisfaðirinn átti þó sveðjuna og byssuna á myndinni.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 20:46