Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
17.4.07

Í um það bil viku fenguð við sumarsýnishorn með sól og 20 stiga hita. Þá var gaman að lifa. Nú er aftur farið að kólna.
Meðfylgjandi myndir eru teknar á laugardaginn. Þá fórum við ca. 20 saman í bekknum í parken að spila strandblak og polo. Á þeirri efstu er ég fæst klædda manneskjan, enda tíðkast það á Íslandi að draga fram mestu sumarfötin í hvert einasta skipti sem sólargeislarnir ná að brjótast í gegnum skýin, enda hvenær svosum annars að fá skartað þeim og notað upp í kostnaðinn. Á neðri myndinni eru 6 manns að borða banana. Bananann drógu þau öll upp nánast sama augnablikinu og renndu honum niður pírð framan í sólinu og engan veginn uppgötvandi að aðrir 5 væru líka að því sama. Þetta var fyndið.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:33