Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
27.4.07

Stundum dreymir mig martraðir. Ég vakna upp einn daginn og uppgötva að margt af fólkinu sem ég elska og dái er ekki lengur partur af jarðneskri tilveru. Tíminn líður svo sjúklega hratt. Það er skelfandi og óþolandi. Kannski vil ég of mikið eða ég sökka í forgangsröðun og múltitaski. Í fyrramálið fer ég í 9 daga skólaferðalag til Hollands og ég er ekki einu sinni búin að pakka upp úr töskunni síðan ég var á Íslandi.
Það verður ábyggilega frábært í Hollandi. Landið er rómað fyrir frábæran arkitektúr og hönnun og dagskráin okkar þétt prógrammeruð af því besta. Ég hlakka til, enda á ég heilan brunn af góðum minningum frá Hollandi. En svo mikið sló það í gegn á sínum tíma að peysan mín var kölluð Holla og hundabangsinn minn Holli. Þá var ég 2 ára í mánaðarsumarfríi með mömmu, pabba og Kristni. Á þeim tíma hefðu vikusólarlandaferðirnar sennilega þótt jafn framúrstefnuleg hugsun og sumarfrí á tunglinu.
Meðfylgjandi mynd er af Java Island, Amsterdam.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 21:23