Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
11.2.07
ÞORRABLÓT

Þegar gott fólk kemur saman þá er gaman. Þorrablótið í gær var engin undantekning. Ég er svo skælbrosandi á öllum myndunum að það er nánast hægt að lesa út hvað var í matinn. Almennt er ég líka bara svo ánægð með skemmtunina þorrablót, konceptið er frábært; íslenskum hefðum haldið í gildi, ekki of stífur klæðnaður, fólk kemur sjálft með matinn sinn og fullorðnir á öllum aldri sameinast í dans og gleði í skammdeginu. Allt á einum stað, einfalt og gott. Að vísu var þetta með örlítið öðru sniði í Álaborg, maturinn var í formi hlaðborðs, enda ferlega mikið vesen ef hver ætti að fara að panta sér hrútspúnga og annað að heiman. Og auk þorramatarins var boðið uppá íslenskt lambakjöt og svo SS pylsur í ball-hléinu, sterkur leikur það. Allt var tip top svo það er ekki annað hægt en að húrra fyrir undirbúningsnefndinni.
Takk fyrir lánið á myndinni Fanndís og Steini.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 23:00