Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
21.1.07

Að þessu sinni og það sem eftir er verður páskafrí í skólanum. Við förum ekki í studietur fyrr en 28. apríl og nú til túlípana- og tréklossalandsins Hollands, hljómar óneitanlega betur en hasslandsins Hollands, þó það sé sterkari stuðlun. Þar með eru flugmiðar til Íslands komnir í hús, ekki seinna vænna, en verðið stígur nánast með hverjum deginum, algjör klikkun. En allavega, Kaupmannahöfn-Reykjavík 29. mars og Reykjavík-Kaupmannahöfn 10. apríl. Stoppa svo í RVK föstudag og hálfan laugardag. Þeim stutta tíma ætla ég að púsla í ýmislegt, verið viðbúin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 00:46