Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
16.1.07
Farvel my friend

Þá er ég flutt í 9000 Aalborg, miðbæ Álaborgar. Það er frábært, þó það sé auðvitað viss eftirsjá í hinu kollegíinu, þar var gott að búa. En fjarlægðin sigraði. Nú eru 5 mínútur í allt, nú er ekkert mál svarið við öllu. Fyrir skondna tilviljun þá er nýtt heimilisfang tvöfeldni þess gamla.
Áður: Lindholm Brygge 1, 2 hæð, íbúð 7. Nú: Brohusgade 2A, 4 hæð, íbúð 14.
Leggið Brohusgade á minnið og endilega bankið uppá, þið eruð mikið meira en velkomin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 21:04