Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
18.11.06

Um daginn var gleðskapur hjá Hanne, nokkurskonar fyrirpartý fyrir Discount fest í Aalborg Universitet, hátíð þar sem allt á barnum kostar 10 DKK, mjög skemmtilegt en getur fljótt snúist í andhverfu sína. Við Lísa mættum auðvitað syndsamlega seint í partýið til Hanne, eða klukkutíma eftir að það byrjaði, en í Danmörku tíðkast að mæta í gleðskap á slaginu, þar þekkist ekki orðatiltækið "Fashionably late". Til þess að friða mannskapinn mættum við með tvær Gajol staupflöskur. Þvílík kátína með þetta ókeypis áfengi, þeir áttu ekki orð, enda er ekkert orð til í dönsku yfir "Að splæsa", ekki sem ég hef heyrt a.m.k. Þessi kátína ríkti reyndar ekki lengi og við fengum að heyra það á mánudeginum, sumir komust ekki einu sinni niður í bæ. Mjög skemmtilegt kvöld annars.
Ég var búin að lofa mömmu að sverta bloggið mitt ekki með fleiri áfengis- og partýmyndum, hvað þá skrifum. Ég get vel sammælst henni í því að þetta gefi ekki sérlega góða og fallega mynd. En engar áhyggjur, ég er ekki komin í ruglið, ég mæti í skólann, hamast í FitnessDK og á boozt master.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 22:39