Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
15.11.06
Á heimilið er kominn hundur. Eða nágrannarnir halda það ábyggilega. Ég er búin að hósta þurrum viðbjóðslegum hósta síðan á mánudag og sjitt hvað það er leiðinlegt að vera lasinn heima, get ekki beðið eftir að komast í skólann. Ég á samt enga vorkunn skilið því ég kom mér í þessar aðstæður sjálf með því að glænepjast í efnislitlu dressi og opnum skóm um helgina. Það getur oft verið dýrkeypt að gellast.
Að öðru leyti er allt hresst, nú er að skella á önnur maraþontörn í skólanum sem varir til 13. desember, en þá sendum við verkefnið okkar í prentun. Kennararnir tala um að þessi önn sé yfirfull af efni, en meginþemað er digital design og industriel design.
Heima virðast allir vera að byrja í prófum; GANGI YKKUR VEL! Heima virðist líka vera skítakalt, snjór og brjálað veður. Hérna eru bara auðar götur og haustrigning. Ég væri alveg til í að fá smá fútt í þetta, vona allavega að það verði snjór þegar ég kem heim.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 17:42