Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
5.9.06
Við Lill Ann fórum í ordentlig jentetur, eins og hún kallaði það, til Kaupmannahafnar um helgina. Þegar lestin stansar í höfuðborginni og vekur mig af væna blundinum er mér ekki skemmt, ég hafði setið á risastórri tyggjóklessu alla leiðina og brætt hana pikkfasta við rasskinnina. Að auki var ég með slef út á kinn og maskara upp á enni eftir svefnaugnhlífina sem átti að vera svo stórkostleg. Eins illa og ferðin byrjaði þá snérist hún algjörlega upp í andhverfuna. Við vorum í góðu yfirlæti hjá Hildi frænku, hittum Dagný Sveins, þræddum Strikið og hliðargöturnar, kaffihúsuðumst, djömmuðum þar til sólin reis, fórum í siglingu, heimsóttum Cristianiu, borðuðum Dominos pizzu og sitthvað fleira...
...sagði Hafdis Sunna klukkan 20:01