|
...2,1,0
Glundur
[[Útvarp á netinu]]
[[Hvað kostar bílferðin?]]
[[Náttúrulegar laugar]]
[[Þvottaleiðbeiningar]]
[[Bindishnýting]]
[[Myntbreytir]]
[[Downloada Skype]]
[[MSN á netinu, án forrits]]
[[Myndskeið]]
[[Politiken]]
[[Mogginn]]
[[BB]]
[[Skólinn minn]]
[[Senda frítt SMS]]
[[Senda frítt SMS í dönsk nr]]
Tenglar
[[Sóley]]
[[LINDALyngmo]]
[[Bjöggi]]
[[Fanndís&Steini]]
[[LísAAlborg]]
[[NONNI&HAUKUR fríka út í AFRIKU]]
[[Greipsi]]
[[Snævar]]
[[UnnurDK]]
[[BenniPenni]]
[[Arna & Lára tala frá Madrid]]
[['86 píur]]
[[Helga frækna frænka í NZ]]
[[OfurKonur]]
[[einasannaANNA]]
[[Árgangur '84]]
[[Gullusnúll]]
[[Helgi Þór]]
[[Snævar og co]]
[[Bogga]]
[[Unnur&Steinar]]
[[Anna&Gummi]]
[[Erna&Margeir]]
[[Óskarssystir]]
[[HelgaOSLO]]
[[Selma&Krissi]]
[[Ásta Björg]]
[[Dóristóri]]
[[TINNA&ANNA tóku heiminn!!]]
[[Sólveig María]]
[[!ÍRIS!]]
[['88 píur]]
[[Vefmyndavél - Silfurtorg]]
[[Benidikt&Sandra]]
[[Flóra]]
[[DKiddi]]
[[Lísaskvísa]]
[[Svanhildur og Sóley]]
[[Skari hugsuður]]
[[Söngdís-a]]
[[Frú Hafdís]]
[[Nonni norðursins]]
[[Ingvarssveitin Bermuda]]
[[Halldóbankó]]
[[Ingibjörg]]
[[LindaPÉ]]
[[Sigurða]]
[[Víkin - live]]
[[FaðirBix]]
[[Kristín Halla]]
[[Tómas&Níels]]
[[OLGAkureyri]]
[[Edith]]
[[Siggi Steini]]
[[Tobbi/Dúddi/Fulli]]
[[Birgitta]]
[[María Kristjáns.]]
[[Biggibiggs]]
[[Mellur]]
[[Matta Jersey]]
[[SímaDenni&fjölsk.]]
[[Svaka Tinna]]
[[Adal Guate]]
[[Skvísdís]]
[[Dúnna]]
[[Guðbjörg&Vera]]
[[Solla og Steinka]]
[[Hljómsveitin The Nevolution]]
[[Kata & Steini fóru í heimsreisu]]
[[Óttar, Bjarni, Röggi]]
[[Gemlingar]]
[[Kristinn bróðir]]
[[Telmalalala]]
[[Brynjar Már]]
[[Gulla súpermamma]]
[[Edda Katkreisi]]
[[Biggi blogg]]
[[Albertína]]
[[Rutla skutla]]
[[heimshornaHaukur]]
[[Ásta María]]
[[Sólveig frænka]]
[[Hrönn]]
[[Aldís Finlandia]]
[[Hljómsveitin Douglas Wilson]]
[[Stubbur]]
[[Vilborgar&Hjaltadóttir]]
[[Fiffi]]
[[Bríet]]
[[Gylfi Ólafsson]]
++++++++
aðrir að skoða síðuna núna
© Hafdís Sunna Hermannsdóttir MAIL: hafdissunna@simnet.is MSN: sunnilius@hotmail.com D A N M Ö R K / I S L A N D |
Seiseihóhójá
"Danslagið seiðirog götuna greiðir" 17.9.06
Skólinn er kominn á fulla keyrslu, byrjaði reyndar strax á fúllsving, ekkert í líkingu við fyrsta árið þar sem fyrstu vikurnar fóru meira og minna í hópefli með tilheyrandi bjórdrykkju. Í sumar voru margir sem spurðu mig hvað ég væri að læra og þar sem titillinn er langur með langri útskýringu urðu svörin oft ferlega hipsum hapsum. Civilingeniøruddannelsen i Arkitektur & Design er en uddannelse på masterniveau inden for Arkitektur, Urban Design, Industriel Design og Digital Design. Uddannelsen består af en 3-årig bacheloruddannelse (BSc) efterfulgt af 2-årig civilingeniøruddannelse (cand. polyt.). Þessi ágæta lýsing er fengin af fínu heimasíðunni okkar, http://www.aod.aau.dk En í stuttu máli er þetta verkfræði og hönnun og hugsunin að við getum hannað hlut, skipulag eða byggingu og reiknað það verkfræðilega sem liggur á bak við.
Í vikunni fórum við til Árósa með skólanum á ráðstefnu um lýsingu (í samhenginu ljós) í Arkitektskolen Århus. Þar stóð líka yfir sýning sem bar yfirskriftina "Islandsk arkitektur", þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig þjóðarstoltið ætlaði að rifna. Dönsku krökkunum fannst íslenskur arkitektúr mjög hrár, en ég útskýrði fyrir þeim að það væri retro bylgja í gangi á Íslandi núna og þetta þyrfti að harmónera við landslagið og veðrið og blablabla þangað til þau steinhéldu kjafti. Mér fannst líka gaman að segja frá því að akkúrat þarna inni og benti á kaffiaðstöðuna í Öskju (sem hýsir náttúruvísindadeild HÍ) hefði ég kvatt þrjár vinkonur mínar daginn sem ég flaug og flutti til Danmerkur. Í þessari Árósaferð sat ég inni á fyrirlestrum allan daginn, en notaði örfáar mínútur utandyra til þess að skipta um fyrirlestrarhús. Viti menn, á leið minni labba ég í fangið á Tinnu og Högna. Ótrúleg tilviljun. Ég brosti út að eyrum, alltaf gaman að hitta eitthvern að heiman.
(Þessi mynd er í boði margeir.net)
Í gær var haustgrill Íslendingafélagsins í Álaborg. Það var frábært að borða góðan mat með hressum Íslendingum og hitta alla Álborgíslensku vinina aftur eftir sumarfríið. En ég þurfti reyndar því miður að yfirgefa samkvæmið frekar snemma því ég var búin að lofa að mæta í partý í kollegíinu mínu. Það var frekar dræm mæting, en krakkarnir 4 úr bekknum mínum sem búa líka hérna mættu öll, þannig að við áttum gott geim saman og komum m.a.s af stað hjólaklúbb sem felst í því að trille sammen i skolen.
Það er búið að vera meiriháttar veður hérna síðastliðnar vikur, sól og 15-20 stiga hiti. En þá eru líka flugurnar í essinu sínu og eftir miklar yfirlýsingar um að vera alveg sloppin við bit tóku þær sig til í ljósaskiptunum einn daginn og fengu sér vænan skammt. Önnur löppin varð til dæmis gjörsamlega tvöföld, það var eins og heil fjölskylda hefði verið undir sokknum hjá mér að snæða bæði hádegis- og kvöldmat.
Svo er á plönunum hittingur í Danmörku, við Haukur ætlum að flytja inn fleiri Íslendinga tímabundið, eins og Ingvar orðaði það. Við þurfum bara að finna eitthverja góða helgi sem hentar flestum, hvort sem það verður fyrir eða eftir áramót. ...sagði Hafdis Sunna klukkan 13:16
Comments:
Skrifa ummæli
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||