Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
9.9.06
Það ríkir mikil partýgleði í Danmörku, sem er auðvitað rökræn afleiðing út frá ódýru áfengi og nálægð Þýskalands. Danir eru skemmtilegir þegar þeir eru kenndir, þá hefur rúðustrikunin náðst að mást aðeins út. Í gær var ég í mjög hressu partýi með stelpum úr bekknum. Hér eyðir enginn krónu umfram það allra nauðsynlegasta og námslán eru skrattinn sjálfur. Það var t.d. bara ein dönsk digital myndavél í partýinu í gær og það þótti rosalega nýmóðins, enda stoppaði flassið ekki. Og svo var auðvitað hjólað á pöbbinn. Það er ábyggilega ferlega hollt fyrir Íslending eins og mig að vera í svona efnahyggjuafslöppuðu landi.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 17:24