Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
24.9.06

Nú er einstaklingsverkefninu lokið og hópverkefnið að hefjast. Við Lill Ann höfum, ótrúlegt en satt, slitið naflastrenginn og erum núna í sitthvorum hópnum, en við erum einar af ör ör örfáum sem hafa verið saman í hóp alveg frá upphafi. Núna er Lill Ann í hóp með Ulrik og félögum en ég í 150% stelpuhóp með Asian beauties.
Svo er ég komin í 11 manna ferðaráð fyrir skólaárið 2006-07 og er því með í að skipuleggja Berlínarferð á haustönn og Hollandsferð á vorönn. Ef þið eruð með góð input endilega látið mig vita. En Berlínarferðin er frá 6-11 október, Dísa, það væri gaman að sjá þig. Haustfríið í skólanum er svo frá 13.-17.október, en það ætla ég að nota í að heimsækja höfuðborg Íslands, enda mikilvægir hlutir að gerast þar, Kristinn bróðir nýfluttur heim og Telma og Kalli að fara að eignast erfingja. Ég flýg semsagt, Berlin - Kaupmannahöfn - Reykjavik þann 11. október og hlakka auðvitað til að sjá ykkur.
Svo er Biggi blogg að koma í heimsókn á morgun og ætlar að vera hérna í eitthvern tíma, það verður stuð.
Meðfylgjandi mynd er af Kristni og Elínu í Berlín.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 15:48