Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
31.8.06
Ég á ógrynni af myndum frá sumrinu, svo valið í síðustu færslu endaði í algjörri handahófskennd. Núna var planið að einblína á flokkinn pósmyndir sumarsins, en ég lagði ekki í það því ég og mínir vinir virðast vera með eindæmum pósglöð. Set því bara eina seríu inn núna, en þarna má sjá Gylfa, Tinnu og mig í góðu glensi. Næst kemur kannski syrpa af okkur Eddu, en við eigum ansi marga spretti fyrir framan linsuna.
Þið verðið eiginlega bara að koma í slideshow og mömmukökur um jólin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 18:43