Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
13.6.06
Jæja, þá er ég búin með fyrsta prófið, P2-eksamen, prófið úr eggjabakkaverkefninu. Við fengum 9, er ekkert yfir mig hrifin, vorum alltof miklir kettlingar að svara fyrir verkefnið. Dönsku stelpurnar vildu endilega hafi e-ð svona réttiupphönd kerfi og láta telja hversu oft hver talaði. Ég kláraði auðvitað allan minn kvóta með það sama svo ég þurfti að halda mig á mottunni í restina, ömurlega pirrandi, svona eru Danir, allir jafnir, alltaf, óþolandi, margar röksemdir sem komust ekki til skila.
En við vorum allavega vel og rétt dæmd, vejlederinn okkar er harður og sensorinn var iðnhönnuður. Þannig að á þeim skala held ég að 9 sé mjög fínt, allavega hæsta einkunnin so far, en eins og Kristinn bróðir sagði þá er aðalatriðið samt bara að sleppa heill á geði frá svona hópverkefnum.
Og þetta er svo módelið af eggjabakkanum sem við hönnuðum.

Það er búið að vera bilaðslega gott veður hérna undanfarna daga, sól og 27 stiga hiti. Eftir prófið fórum við Lill-Ann með Flóru á ströndina í Blokhus að fagna, frábært að geta loksins notið veðursins. Tókum fullt af nammi, jarðarberjum, melónum, snakki og drykkjum með og flatmöguðum eins og kóngar í 2 tíma.
Næstu próf eru svo stærðfræði 16. júní og 3D og burðarþolsfræði 21. júní. Það er engin einkunn í þeim prófum, annað hvort nærðu eða ekki.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 06:14