Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
16.6.06
Ég var æst í síðustu færslu, fyndið. Það var ekki meiningin að úthúða jafnréttishyggju Dananna, hugsunin var falleg og góð þó svo að hún hafi ekki fúnkerað í prófinu þar sem kvótamiklu stelpurnar nýttu ekki talfrelsið sitt sem endaði í þögn sem sensor og vejleder gripu til þess að fara í næsta efni, sem olli að sjálfsögðu því að margar röksemdir komust ekki til skila. En þú veist... það dó enginn og við fengum frábæra einkunn, algjör óþarfi að vera að æsa sig.
En að öðru mikilvægara,
TIL HAMINGJU með 62 ára afmæli lýðveldisins á morgun, 17. júní! Týpísk íslensk sumarmynd í tilefni þess.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 17:54