Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
18.5.06

Það er örstutt í sveitarstjórnarkosningar, spennan magnast og blóðþrýstingur eykst. Æ fleiri sjást skrýddir flokksbarmerkjum og atkvæðisönglum eins og grilluðum pulsum, loforðum og skínandi brosum er óspart beitt til þess að ná sem stærstri veiði þann 27. maí.
Kannanir benda til góðs fylgis Í-lista á Ísafirði. Viljiði í alvörunni Ólínu sem aftursætisbílstjóra? Krakkar, ekkert rugl.
Á morgun er síðasti dagurinn til að kjósa utankjörstaðar í Álaborg svo á morgun kem ég við hjá konsúlnum og set Xið mitt á réttan stað. En þar sem danska ríkið krefst þess að þeir sem búa í landinu eigi lögheimili í Danmörku, hefur verið gerður samningur milli Norðurlandanna þar sem þeir sem eru 18 til 28 ára og eru í námi í einhverju Norðurlandanna hafi kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum í því sveitarfélagi sem viðkomandi átti lögheimili í síðast.
Læt fylgja með mynd af þessum tígullega fálka og vona að hann vísi ykkur leiðina að rétta exinu.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:42