Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
29.4.06

Nú er nágranninn farinn að slá blettinn sinn og krakkarnir fara bráðum að mæta í flipflopum í skólann, önnin er að verða búin, það er að koma sumar.
Við skilum P2 verkefninu í prentun 21. maí og svo fer ég í próf 12., 16. og 21. júní. Daginn eftir síðasta prófið flýg ég heim til Íslands. Ég á eftir að iða af spenningi alla leiðina og klappa, öskra og hoppa af gleði við lendingu. Reykjavíkurvinir, ég banka uppá 23. og 24., vona að þið verðið heima, við getum líka hist við pulsuvagninn, hehe. Kem svo sennilegast til Ísafjarðar á sunnudeginum.
Læt fylgja með sumarmynd af götunni minni og hressa 2005 grillmynd úr myndasafni Gylfa og Tinnu.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 12:50