Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
17.3.06
Það er kominn föstudagur, það er frábært. Í dag er St. Patrick's day og í dag kom páskaölið til Danmerkur svo í kvöld er tilefni til að fagna með Erdinger hveitibjór (5 stjörnur) á írska barnum þar sem miklu stuði er lofað og påskebryg á Saltlager því skv. ákveðinni píu á þar að vera sætasti barþjónn Danmerkur. Það er samt ferlegt hvað ég er orðin hrifin af þessum ágæta drykk, bjór, því hver er það líka? Hómer Simpson og hvernig lítur hann út? Annars er helgin að öðru leiti bara læri læri tækifæri.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 16:52