Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
10.3.06

Ef eruð gott fólk og vel uppalin þá er íbúðin mín til leigu í júlí og ágúst. Þetta er ný 50 m2 stúdíóíbúð með baðherbergi, eldunaraðstöðu, svölum og bílastæði staðsett í Álaborg (Nørresundby), rétt við Lindholm strætó- og lestarstöðina og nokkur skref frá kjörbúð, ljósastofu, blómabúð og skyndibitastað. Þvottavél og þurrkari eru aðgengileg í kjallara. Íbúðin er til leigu með öllu mínu hafurtaski - húsgögnum, eldhúsáhöldum, sjónvarpi, DVD spilara, örbylgjuofni og fleiru.
Ég mæli hiklaust með Álaborg - ódýrari en Köben, flottar búðir í massavís, tívolíi, dýragarður, Jomfru Ane Gade...
Ef þið hafið áhuga, endilega hafið samband: hafdissunna@simnet.is.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 00:00