Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
17.2.06
Var að fletta í gegnum haustmyndasafnið og fann þá þessar myndir. Fannst þær ágætis mótvægi við vetrarsnjóveður Álaborgar og Ísafjarðar.

Þessi skel fannst mér merkileg, en hún er mjög löng og algjörlega ferköntuð.

Þessi mynd er tekin í Kaupmannahöfn, hef sjaldan séð mig jafn hugsi á mynd, er ábyggilega að hugsa langt yfir hafið.

Þessi drekafluga flaug inn um svalahurðina hjá mér í haust og skalf eins og hrísla af hræðslu við Gúlliverinn mig.

Þessa mynd tók Kristinn. Fyndin litasamsetning, en þetta var alveg óuppstillt. Ég ætti eiginlega að vera á prósentum hjá Apple, finnst ég alltaf vera að pósta powerbookinni þeirra.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 11:49