Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
20.2.06

Partur af afmælisgjöf frá Íslandi, Draumur með 3 lakkrísrörum, geðveikt heppin. Tók reyndar ekki eftir því fyrr en á síðustu bitunum, var svo utan við mig við að njóta bragðsins.

Afmæliskakan.
Mér bárust fjöldinn allur af frábærum afmæliskveðjum í gegnum allskonar miðla - þúsund þakkir fyrir að muna eftir mér, þetta hitti beint í hjartastað. Takk sömuleiðis fyrir afmælisgjafirnar sem eru komnar og sem eru á leiðinni, alveg super.
Ég átti góðan afmælisdag, í raun frábæra afmælishelgi - var boðið í djúsí matarboð, fékk pakka á miðnætti, át ógrynni af sælgæti og svo ágætis köku á kaffihúsi. Nú hefur 22 aldursárið færst yfir mig. Ég græt það ekki, ég er ótrúlega fegin að detta inn í slétta tölu, oddatöluárin hafa verið hálfgerð andstæða léttu sléttu, að minnsta kosti síðastliðin 17, 19 og 21.
Afmælispartýið sjálft verður haldið helgina sem Tinna verður í heimsókn, boðið kemur í næstu færslu.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 21:06