Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
16.2.06
Ég eins og aðrir Íslendingar er alin upp við þá tuggu að vera með víkingblóð í æðum, hreystið uppmálað, sterk eins og Grettir og aldrei bugast þó á móti blási. Stundum verður þessi hugsun sterkari en skynsemin. Mér fannst ég ekki getað verið orðlögð fyrir að vera lasin lengur en einn dag, tímdi heldur ekki að missa meira úr skólanum og fór því í skólann í gær dúðuð eins og ég væri að fara á jökul hóstandi og sjúgandi upp í nefið hægri vinstri. Dagurinn endaði svo með þvi að augun voru orðin sokkinn og ég búin að missa allt vit og rænu. Upp úr víkingahugsun og engri biðlund fór allt í steik og ég fékk ennþá meira kvef, hita og hálsbólgu og missi þarafleiðandi ennþá meira úr skólanum. Spæling spæling spæling )!("#/"!)=#=)!_"#/&%"$$!"#)/()("(&"%. Mér finnst eins og sýklarnir séu að brjóta sér leið út um augun, aaaaaaaa þetta er viðbjóður.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:47