Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
11.2.06

Þá er það ákveðið, ég kem ekki heim um páskana, heldur fer ég til Feneyja með bekknum. Á endanum var þetta ekki mikið val því Ítalíuferðin er metin sem einn kúrs og annar kúrs er tekinn í ferðinni sjálfri. Ég efast ekki um gildi Ítalíuferðarinnar, hún verður án efa frábær og skemmtileg. En samt sem áður er ég mjög sorgmædd, spæld yfir því að ferðin hitti akkúrat á páskana, því þeim langaði mig ótrúlega mikið til að eyða í faðmi fjölskyldu, vina og fjalla blárra, alveg ýkt hress á Ísafirði. En það verður að bíða þangað til í júlí, ekki nema 140 dagar.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 15:18