Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
28.2.06
Það er allt að verða vitlaust og stefnir í ferlega skemmtilega og gleðiríka næstu 4 daga - heimsóknir og 30 manna afmæli með bleikri bollu, leikjum, köku, hawaii krönsum, Carlsberg, Tuborg, live músíkk og rosalegu stuði. Er einmitt að gera velkomstplaylista með Kim Larsen, Pöpunum, AC/DC, Counting Crows o.s.frv. - ólíkt fólk, ólík tónlist. Þetta verður e-ð skrautlegt. Vildi geta sagt ykkur mikið fleira, en það er annað og meira sem öskrar á mig - íbúðin er ein sprengjurúst og verkefnastaflinn bíður. Set eflaust nokkrar hressar myndir og texta inn eftir helgi frá þorrablóti, matarboði, heimsóknum og afmæli.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 23:59