Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
11.1.06
"Og loks kom hamingjan, ó hamingjan, hún var best af öllu sköpunarverkinu..." Búin með fyrsta prófið á haustönn, sýndi fram á vinskap okkar Matematiku og náði með stakri prýði - sjúkkit fjúkkit. Ekkert smá fegin að þetta ógeðis munnlega stærðfræðipróf sé loksins yfirstaðið. Næsta próf er ekki fyrr en 30. janúar, en þá eigum við að flytja og verja 30 blaðsíðna P1-verkefnið okkar. Dagarnir þangað til eru settir í prófundirbúning, partý, tónleika, tiltekt, skipulag og heimsókn frá Skúla bróður. En af 21 millibilsdegi eru þónokkrir ennþá auðir og óskipulagðir, það er nefnilega enginn skóli í janúar, næsta önn byrjar ekki fyrr en 1. febrúar. Geng í hringi yfir því að vera ekki með þá útfyllta. Gæti kannski gerst hurðaopnari; opnað hurðir fyrir fólk og þáð klink fyrir eða reynt að komast í heimsmetabók Guiness með því að finna upp á allskonar rugli til að gera. Sjáum hvað setur.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 20:56