Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
31.1.06

Bjórinn freyðir, gleðin seiðir.

Sá hjartaknúsarann og stelputryllirinn James Blunt í Kaupmannahöfn með góðu fólki. Þó ég vilji ekki verða orðlögð fyrir að vera Bluntari, þá var þetta fínt stuð.

"A cut above the Jem's of this world" - Independent. Nerina Pallot ...og auðvitað stjörnusleikirinn ég.

Hópur B347. Við erum búin að drekka, borða og læra saman síðan í október. Á morgun verður skipað í nýja hópa með nýju fólki, það verður skrýtið.

Lill Ann og dönsku stelpurnar í hópnum.
Skúli bróðir var svo yndislegur að koma að heimsækja mig.
Hann fixaði fullt af hlutum fyrir mig og gaf mér það sem honum fannst ég nauðsynlega þurfa að eiga; borvél, verkfærakassa, skrúfur, bitasett, skrúfjárn og kaffivél. Ekkert smá gaman og gott að fá hann, algjör gullheimsókn.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:40