Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
24.12.05
Mér bárust falleg jólakort með fallegum kveðjum. Takk: Hrönn, Kristín Ólafs, Sóley, Svanhildur, Ingvar, Fiffi, Edda & Kolbeinn.
Ætlaði að pósta vídjókveðju, en eftir 27 ómögulegar upptökur (Jóa Fel sturtutaka, ljótskreytingartaka...) sé ég að þuluhlutverkið liggur ekki fyrir mér og sendi því rafskriftarkveðju.
Hugheilar jóla- og nýjárskveðjur til vina og fjölskyldu nær og fjær með þökkum fyrir ljúfar stundir á liðnum árum. Megið þið hafa það sem allra best, alltaf. Vonast til að sjá ykkur meira á nýju ári, bæði á íslenskri og danskri grund.
/Lesist með Gerðar G. Bjarklind rödd/
...og síðast en ekki síst, juleklem til Norge og Danmark.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 16:31