Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
4.12.05

Matarboð hjá mér. Það gekk stórslysalaust, enda var ég með góða gesti sem allir komu í eldhúsið. Meistari Mugison.

Tónleikarnir voru eins og við var að búast, meiriháttar.

Og ekki skemmdi fyrir að fá koss og knús frá Ödda.

Lísa, Kiddi, Sören, Andri hress á tónleikum. Það vantar Lill Ann á myndina. En henni fannst Mugison svo frábær að hún keypti bol + 2 diska. Innan næstu 5 ára verður hún orðin íslenskari en sauðkindin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 22:40