...2,1,0




Glundur
[[Útvarp á netinu]]
[[Hvað kostar bílferðin?]]
[[Náttúrulegar laugar]]
[[Þvottaleiðbeiningar]]
[[Bindishnýting]]
[[Myntbreytir]]
[[Downloada Skype]]
[[MSN á netinu, án forrits]]
[[Myndskeið]]
[[Politiken]]
[[Mogginn]]
[[BB]]
[[Skólinn minn]]
[[Senda frítt SMS]]
[[Senda frítt SMS í dönsk nr]]

Tenglar
[[Sóley]] [[LINDALyngmo]] [[Bjöggi]] [[Fanndís&Steini]] [[LísAAlborg]] [[NONNI&HAUKUR fríka út í AFRIKU]] [[Greipsi]] [[Snævar]] [[UnnurDK]] [[BenniPenni]] [[Arna & Lára tala frá Madrid]] [['86 píur]] [[Helga frækna frænka í NZ]] [[OfurKonur]] [[einasannaANNA]] [[Árgangur '84]] [[Gullusnúll]] [[Helgi Þór]] [[Snævar og co]] [[Bogga]] [[Unnur&Steinar]] [[Anna&Gummi]] [[Erna&Margeir]] [[Óskarssystir]] [[HelgaOSLO]] [[Selma&Krissi]] [[Ásta Björg]] [[Dóristóri]] [[TINNA&ANNA tóku heiminn!!]] [[Sólveig María]] [[!ÍRIS!]] [['88 píur]] [[Vefmyndavél - Silfurtorg]] [[Benidikt&Sandra]] [[Flóra]] [[DKiddi]] [[Lísaskvísa]] [[Svanhildur og Sóley]] [[Skari hugsuður]] [[Söngdís-a]] [[Frú Hafdís]] [[Nonni norðursins]] [[Ingvarssveitin Bermuda]] [[Halldóbankó]] [[Ingibjörg]] [[LindaPÉ]] [[Sigurða]] [[Víkin - live]] [[FaðirBix]] [[Kristín Halla]] [[Tómas&Níels]] [[OLGAkureyri]] [[Edith]] [[Siggi Steini]] [[Tobbi/Dúddi/Fulli]] [[Birgitta]] [[María Kristjáns.]] [[Biggibiggs]] [[Mellur]] [[Matta Jersey]] [[SímaDenni&fjölsk.]] [[Svaka Tinna]] [[Adal Guate]] [[Skvísdís]] [[Dúnna]] [[Guðbjörg&Vera]] [[Solla og Steinka]] [[Hljómsveitin The Nevolution]] [[Kata & Steini fóru í heimsreisu]] [[Óttar, Bjarni, Röggi]] [[Gemlingar]] [[Kristinn bróðir]] [[Telmalalala]] [[Brynjar Már]] [[Gulla súpermamma]] [[Edda Katkreisi]] [[Biggi blogg]] [[Albertína]] [[Rutla skutla]] [[heimshornaHaukur]] [[Ásta María]] [[Sólveig frænka]] [[Hrönn]] [[Aldís Finlandia]] [[Hljómsveitin Douglas Wilson]] [[Stubbur]] [[Vilborgar&Hjaltadóttir]] [[Fiffi]] [[Bríet]] [[Gylfi Ólafsson]]

++++++++
aðrir að skoða síðuna núna

© Hafdís Sunna Hermannsdóttir
MAIL: hafdissunna@simnet.is
MSN: sunnilius@hotmail.com
D A N M Ö R K / I S L A N D




Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"





19.12.05

Ég brosi hringinn, ég er komin til Ísafjarðar. Á hverjum einasta morgni í fjóra mánuði fór ég yfir ferðalagið í huganum í lestinni á leiðinni í skólann og alltaf varð það fullkomnara og fullkomnara. Loksins rann ferðadagurinn upp, en hann varð hinsvegar að svarthvítri andstæðu ljúfa ímyndunarferðalagsins.

Ég var að pakka niður alveg þangað til korteri áður en lestin fór og hafði þá verið vakandi í 3 sólarhringa. Þar með fór fyrsta atriði ímyndunarferðalagsins, sæt, fersk, hress. Næsta atriði fór þegar lestin stoppaði í Odense og lestarvörðurinn tilkynnti farþegum að starfsmenn DSB væru farnir í verkfall. Gömlu hjónin í sætunum á móti tóku nú bara viskýið upp og staupuðu sig. Til þess að ná flugvélinni þurfti ég að taka hraðskreiðasta taxann til Kaupmannahafnar. Svolítið skondið moment reyndar, atriði í svona Christmas Miracle mynd, bílstjórinn keyrandi á fullu gasi til að koma mér heim fyrir jól, jólalögin glymjandi í útvarpinu, snjókoma og nýfallinn jólasnjór yfir öllu. Eftir að hafa greitt 13 þúsund fyrir taxann tók á móti mér smeðjubrosandi Dani á Kastrup sem sagði mér að ég þyrfti að greiða 28. þúsund í yfirvigt. Ég mátti ekki taka flugfreyjutöskuna mína með inn í vélina af því bakpokinn minn vó 8 kíló og max í handfarangur er 10 kíló. Ég var frekar tæp á tauginni og fann hvernig tárin byrjuðu að streyma. Daninn bliknaði ekki og sagði mér að hundskast til að borga ef ég ætlaði með vélinni. Gott og vel, ég komst allavega með vélinni og gleðilega myndi ég ná klippingunni minni á Tony & Guy klukkan hálfsex. Eftir að hafa beðið við bandið í óralangan tíma farin að sjá sömu töskurnar aftur og aftur án þess að fá eina af mínum fannst mér þetta orðið dularfullt og kíkti á skjáinn, Kaupmannahöfn var dottin út og Oslotöskur farnar að streyma inn. Frábært, töskurnar mínar týndar. Ég þurfti að standa heillengi í röð með brjáluðu fólki til þess að fylla út skýrslu og missti þar með af jólaklippingunni. Jæja, til þess að bæta fyrir þetta allt ætlaði ég sko að taka hressilega á því á löngu plönuðu laugardagsdjammi með Eddu á Ísafirði. Þar fór síðasta vonin, síðasta atriði ímyndunarferðalagsins - flugi til Ísafjarðar aflýst.

En skítt með allt, ég er komin heim. Orkan og athyglin um jólin beinist að fjölskyldu og vinum, svo tölvan á eftir að sitja á hakanum. Þess í stað verður bloggið nært með MMS myndum, enda MMS sendingar hjá Símanum ókeypis í desember. Hafið það gott elsku vinir, hlakka til að sjá ykkur.

...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:20
Comments: Skrifa ummæli
eXTReMe Tracker