Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
24.11.05
Sjitt hvað tíminn líður hratt, var ekki mánudagur í gær? Á morgun er föstudagur og þar með síðasta helgin í nóvember, semsagt fyrsti í aðventu á sunnudaginn. Kreisí, næst þegar ég sný mér við verður hárið grátt.
En ég kvarta ekki sárlega því tímans ógnarhraði styttir biðina í Íslandsferð. Þá fæ ég að sitja alla leið í Kastrup lestinni, ekki bara að fyrstu stoppistöð eins og alla hina dagana. Ég hlakka ógeðslega mikið til, svo mikið að þegar ég loksins lendi í Keflavík verð ég aum í öllum andlitsvöðvum og komin með helmingi fleiri hrukkur í kringum augun.
Annaðkvöld ætla ég að taka þátt í jólastemningunni í bænum og á laugardaginn er stefnan sett á Kaupmannahöfn. Þetta þýðir jólagjafakaup. Jólagjafaóskalistinn lokar kl. 17:00 á morgun, óskum skal skilað inn á formi SMS +4520820777. Takk.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 18:19