Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
2.11.05
Fagnlaus gróðleikur (q.T&N)
Í dag teiknuðum við eftir módeli. Módelið var nakin kona. Ekki það að mér finnist nekt e-ð fyndin (okei smá), bara fyndið að sjá hvað allir urðu e-ð vandræðalegir, hversu alvarleg módelið var og sjónina; fullklæddur kennari með bindi að ræða spekingslega við kviknakta konu. Ég þurfti að bíta í varirnar til þess að fara ekki að skellihlæja. Ég veit að ef Aðalbjörg hefði verið með mér þarna þá hefðu varirnar brostið.
Í dag keypti ég gestasæng, extra langa úr 75% gæsadún. Takið Tinnu til fyrirmyndar, hún er kúl.
Kennaranum mínum finnst bárujárnshúsin á Íslandi merkileg. Kolbeinn og Edda, þið búið í merkilegu húsi.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 22:43