Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
18.11.05
Það eru 3 stelpur í minni deild/mínum bekk hættar í skólanum. Hah, og ég er ekki ein af þessum 3 - jess. Ætlaði reyndar að hætta fyrsta skóladaginn minn, fannst þessi nýja tilvera hræðileg, barðist við tárin allan daginn og í lok dagsins sagði ég Kristni bróður í gegnum ekkasogin að ég væri að fara heim til Íslands. Hehe, Sunna kjánaprik, þetta er ekki svo slæmt eftir allt, eiginlega bara mjög fínt.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 13:32