Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
10.10.05
Oftar en ekki eru málstöðvarnar búnar að mynda orðið já og munnurinn búin að hleypa því út áður en heilinn fær tíma og rúm til þess að melta og ákveða. Ég er orðin hármódel hjá danskri stelpu sem er að fara að taka sveinsprófið 15. nóv. Áðan fór ég á stofuna og allt hárgreiðslufólkið þar hópaðist að mér og skoðaði mig í krók og kring, þuklaði á hárinu, athugaði eyrnastærð, augnalit og fleira í þeim dúr. Síðan upphófst mikið spjall um í hvernig kjól ég ætti að vera og með hvernig augnskugga, hvaða litir færu við augun og húðlit. Því næst voru teknar myndir af mér. Úff, og þetta er bara byrjunin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 15:51