Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
2.10.05

Í gær fór ég til kóngsins Kaupmannahafnar, en þangað hef ég aldrei komið, fyrir utan 2 klst kvöldstopp milli lesta. Biggi Örn og Alexander Örn sóttu mig á lestarstöðina og fengu það hlutverk að sýna mér borgina. Þeir stóðu sig eins og sannir leiðsögumenn og við tókum túristarúnt þar sem ég sá Nyhavn, garð HC Andersen, Amalienborg, Strikið, Kristaniu ofl. Við ætluðum að skoða part af þessu betur en slepptum því þar sem Kaupmannahöfn heilsaði mér ekki með sólskinsbrosi heldur rigningu og vindi. Þess í stað kíktum við í verslunarmiðstöð, á kaffihús og út að borða og þar sem Biggi og Alexander heilsuðu með brosi og voru hressir þá varð þetta að sjálfsögðu allt saman mjög skemmtilegt.
Á meðfylgjandi mynd sjást B og A á Strikinu súrir á svip, helvítis rigningin nýskollin á.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:19