Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
19.10.05
Það er margt mjög sniðugt í skólanum, en líka margt ósniðugt. Fyrsta skóladaginn fengum við til dæmis ekki lista yfir allar bækurnar og dótið sem við áttum að kaupa svo nánast í hverri einustu viku þurfum við að sendast niður í bæ eftir e-m smáhlutum. Fyrst var það Calculus stærðfræðibókin, svo sérstakir tússar, svo sérstakir blýantar, svo leirinn, svo A3 teikniblokkin.... Þetta er óþolandi og hentar mér að minnsta kosti ekki, því ég hef ekki sjálfstjórnina í að kaupa aðeins einn hlut í bænum, auk þess sem tíminn er peningar.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:04