Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
18.9.05
Var í fríi í skólanum á föstudaginn svo ég fékk 3ja daga helgi, það var kærkomið. Sinnti búðaþörfinni, heimilisstörfunum og skólabókunum, heimsótti nýja nágrannann, bauð Lill-Ann í mat og fékk þá SMSið "Hæ Sunna, ætlar þú ekki að koma á ballið í kvöld??" Fjárinn, ég hafði steingleymt ballinu og missti því af Klakamótsballi með íslensku sveitunum Byltingu og Hvanndalsbræðrum. En á Klakamótinu keppa öll íslensku fótboltafélögin í Danmörku og mótið var haldið í Álaborg í ár svo um helgina þyrptust hingað Íslendingar frá Köben, Arhus, Odense o.s.frv.
Ég minntist á nýja nágrannann. Já, ég er komin með nýjan nágranna, Siggi, íslenski strákurinn sem er með mér í bekk er fluttur í sama fjölbýlishús og á sömu hæð. Hann er sjálfskipaður í hlutverk danskrar móður minnar og á að sjá til þess að ég mæti í skólann á morgnana og veslist ekki upp af matarskorti.
30. september er ég svo að fara í afmæli yfir landamærin, það verður stuð. Segi ykkur betur frá því þegar nær dregur.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 12:58