Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
23.9.05

Telma stjarna klukkaði mig svo nú verð ég að standa mína pligt og gera grein fyrir 5 hlutum um sjálfa mig.
1. Minn Akkilesarhæll er óstundvísi. Mér finnst það óþolandi og um hver einustu áramót strengi ég heit um bót og betrun í þeim málum.
2. Dans er eitt af mínu uppáhalds og þá er ég ekki að meina stríðsdans, hann er aðeins til að lemstra fólkið í kring.
3. Ég horfi eiginlega aldrei á sjónvarp og þegar ég horfi á það þá er fréttatíminn, tónlist eða Simpsons yfirleitt á skjánum.
4. Mér finnst blöð, tímarit og bækur frábærir hlutir, þó ekki skáldsögur, þær les ég aldrei.
5. Án fjölskyldu og vina væri ég eins og strá í vindi.
Ég ætla að enda þennan hlekk leiksins, ég ætla ekki að klukka neinn.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:37