Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
9.9.05
Jess, það er kominn f dagur - föstudagur, frí framunan, fínt, frábært! Í gær var Poolparty á vegum nemendafélags arkitektúr og design deildarinnar, en núna standa yfir allskonar nýnemauppákomur til þess að þjappa öllum betur saman. Næst er það Knoldbold, fótbolti með frosinn kjúkling og svo Ruskursus sem er nokkurskonar útilega. Billjardpartýið var fínt, þemað var ströndin og því voru allir í Ibizafötum með blómakransa og sólhatta, en fyrst fór bekkurinn saman út að borða, það var gott að fá kjöt í kvöldmat í stað samloku.
Í kvöld er partý hjá einum stráknum í hópnum mínum, við Lillann ákváðum frekar að taka vídjó og kaupa nammi. Á Laugardaginn er ég svo að fara í Íslendingagrill og ball, hlakka til, það verður unaðslegt að geta talað íslensku.
En núna er það bara tiltekt, uppvask og þvottur, úff það er nú meira puðið að vera húsmóðir.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:09