Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
4.9.05
Fór út með Lillann norsku í gærkvöldi á Jomfru Anes Gade, fræg næturlífsgata hér sem inniheldur fullt af veitingastöðum og börum. Það var bara nokkuð fínt, þetta er allavega ekta flott djammgata, það vantaði bara allt skemmtilega fólkið til að dansa við, þetta hefði verið æði ef allir Íslandsvinirnir hefðu verið þarna. Vorum samt ekki alveg í taktíkinni svo fyrsta verkið í vikunni er að kaupa innvíðar þröngar buxur, helst hvítar og þröngan lítinn jakka, leddarinn og víðu Diesel buxurnar voru sko ekki að virka.
Hvort sem það er tilviljunin, forlögin, Guð eða önnur yfirnáttúruleg öfl þá er ótrúlegt að fyrsta manneskjan sem ég kynnist hérna sé svona fín og eigi svona mikið sameiginlegt með mér, fleiri og fleiri atriði koma í ljós eftir því sem ég er meira með henni - nákvæmlega sömu áhugamál, 4 systkini, pabbi hennar var skipstjóri og svo hafnarstjóri o.s.frv. o.s.frv. Þetta er næstum fáránlegt.
En það er einmanalegt að búa einn, enginn til að bjóða góðan daginn og góða nótt, enginn til að segja það sem manni dettur í hug, engin svör að minnsta kosti. Vonandi breytist þetta og bráðum verði komið far á hurðina mína eftir öll bankin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 15:51