Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
14.9.05
Danir eru fyndnir. Þeir gera allt þvert á móti almennum heilbrigðisreglum, drekka ógeðslega mikinn bjór, reykja geðveikt mikið og halda að þeir eigi að vera súkkulaðibrúnir árið um kring, enda ljósastofur á hverju horni. Rétt hjá mér er t.d. kjörbúð og ljósastofa - allt sem þarf í hvert hverfi. Þetta er svona sjálfvirk ljósastofa með fullt af Ergoline bekkjum með innbyggðu útvarpi og öllum græjum. Maður setur bara helling af klinki í sjálfsala, velur bekk og fær að vera eins lengi og klinkið dugar.
Ég skil ekki alveg þessa Spánarstemningu sem er í gangi, ekki nóg með brúnkuna heldur eru allir ferlega léttklæddir og í skólanum er fólk á tánum og í flipflopum.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 16:19