Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
26.9.05

Bjór var eldsneytið mitt bæði á fimmtudag og laugardag, það er ekki sérlega kröftugt og gott eldsneyti, að minnsta kosti ekki daginn eftir. En þetta var allt saman mjög skemmtilegt, sérstaklega hóppartýshúllumhæið á fimmtudagskvöldið. Við dönsuðum báða dagana til sex, en annaðhvort er það síðasta kvöldlestin heim kl. eitt eða fyrsta morgunlestin kl. sex. Það var samt ekki mín hugsun þessi kvöld, ég hélt að klukkan væri að fokka í mér og minntist Stebba Hilmars syngja "Ég stíg rauðan dans & rykið þyrlast upp. Í þessum búningi, á þéttum snúningi, ég snýst og gleymi mér."
En það er fáránlega mikil dansmennining hérna í Danmörku, eða það er allavega mín upplifun. Dansgólfin hér í Álaborg minna mig á iðandi dansgólfin á Kúbu, upplifun sem ég hélt að ég fengi hvergi í Skandinavíu. Hérna er dansað hönd í hönd, fólk er að sýna alvöru danstakta og það besta er að dansinum fylgja engir skilmálar.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 21:23