Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
9.6.05
Spurningin um hvað ég ætli að gera í haust brennur eflaust á vörum einhverra. Ég er að fara að sjúga í mig fróðleik, hvar veit ég ekki. Ég sótti um og fékk inn á hönnunarbraut í iðnskólanum í Hafnarfirði, í Byggingartæknifræði og Rekstrarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík, Umhverfis- & byggingarverkfræði í Háskóla Íslands og nýja námið á Bifröst, heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Ég sótti líka um í Verkfræði á sviði arkitektúr- og hönnunar í Danmörku, en fæ ekki svar þaðan fyrr en í lok júlí, stóórefa að ég komist inn, þar sem inntökuhlutfallið er 25%. Je, sjáum til hvar ég enda, kannski snarskipti ég um skoðun eða gugna á öllu saman og verð bankakona að eilífu.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 00:30