Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
8.6.05

Í gærmorgun fór ég suður á námskeið á vegum bankans og átti pantað heim með kvöldvélinni, en það var ófært. Ég var ábyggilega sú eina sem brosti hringinn þegar aflýsingarflugstilkynningin kom. Jess, ég komst á Iron Maiden á A-svæði og gat rokkað með Heimi frænda og Bruce Dickinson. Ótrúlega gaman - bilað show, flottur flutningur, fín stemning... sérstaklega þegar þeir tóku Run to the hills og Number of the Beast. Bruce Dickinson er líka bara svo svalur, ekki amalegt að vera rokkstjarna og flugmaður!
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:56