Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
21.5.05

Í dag er súr dagur, missi af pizzuboðinu hans Kolbeins (pizzurnar hennar Beggu eru rómaðar fyrir að vera þær bestu og ég er ekki búin að hitta Kópaskerskolbein í marga mánuði), súkkulaðipönnukökum Benna og Söndru (Benni fæddist fyrirmyndarhúsmóðir), partýinu hans Nonna (partýin hans klikka ekki og eru líka á besta stað í bænum) og afmæli bróðurdóttur minnar (sem verður haldið með pompi og prakt á U-19) af því að ég er að vinna frá 16-24. Svona er nú lífið skemmtilegt, en þetta asnaðist ég til að koma mér sjálf í svo ég á enga vorkunn skilið.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 13:30