Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
14.4.05

Á laugardaginn fór ég í síðbúið afmælispartý til Tinnu á Flateyri. Þar var feikigaman og flott á boðstolnum. Síðan fóru allir á Vagninn og þarf auðvitað ekki að segja frá því að þar hafi verið gaman. Tinna hýsti mig svo um nóttina, takk fyrir höfðingsskapinn Tinna og takk fyrir partýið. Ég á engar myndir frá þessu kvöldi þar sem myndavélin ákvað að vera batteríslaus þegar ég var búin að draga hana upp og segja öllum að segja sís. Vá hvað maður verður stundum pirraður á þessu elektróndóti.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:48