Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
12.3.05

Moli bróðursonur kom í heimsókn um daginn og þurfti að dúsa í þvottahúsinu á meðan hinir fjölskyldumeðlimir hans voru í matarboði. Þegar ég lít á hann í fyrra skiptið þá er hann steinsofnaður innan um alla skóna. Mér finnst hann ofboðslega sætur og krúttlegur og smelli því af honum mynd. Í seinna skiptið þegar ég lít á hann finnst mér hann bara alls ekkert sætur og krúttlegur því þá liggur með hausinn ofan á Diesel skónum mínum og slefið drýpur.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 00:50