Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
22.3.05

Það er búið að vera kreisi mikið að gera undanfarnar vikur og í öllum hamaganginum sprakk herbergið og myndavélin týndist. Allt er að mjakast í sitt fyrra horf, a.m.k er myndavélin fundin og því ætla ég að taka skurk í myndbirtingum og textainnsetningum. Það sem hefur dunið á eyrunum undanfarið er: "Neihh, þú hér... líka!", "Ertu bara allstaðar" o.s.frv. sem er óttalega pínlegt þar sem ég er búin að nauðga öllum sem kjósa einhver viðskipti einhvers staðar. Lenti t.d. í því um daginn að afgreiða sömu konuna tvisvar, en á sitthvorum vinnustaðnum, sama daginn! Var nefnilega í afleysingum á bæjarskrifstofunni og apótekinu í desember og afleysingum í apótekinu í febrúar, auk þess að beita. En nú er ég gengin til liðs við Banka allra landsmanna og sel pulsur og ís í aukastarfi.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 13:16