Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
3.2.05

Í sumar þegar við Kristinn vorum á Vagninum kom þessi viðkunnalegi strákur til okkar og heilsaði okkur með nöfnum. Við fórum alveg í skít, því við höfðum ekki hugmynd um hvaða náungi þetta væri - klóruðum okkur í kollinum hundrað sinnum, en ekkert skilaði sér. Það var ekki fyrr en í dag, mörgum hugsunum og gerðum síðar sem þetta skýrðist. Þetta er Gossi gamli nágranni af Urðarvegi 20, bróðir hans Samma í Jagúar sem ásamt Mugison sópaði til sín verðlaunum á ÍT. Þar höfum við það Kristinn. Bíð bara eftir því að það poppi upp í hausinn á mér hvar Fjalla-Eyvindur og Halla séu í alvörunni grafin.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 23:26