...2,1,0




Glundur
[[Útvarp á netinu]]
[[Hvað kostar bílferðin?]]
[[Náttúrulegar laugar]]
[[Þvottaleiðbeiningar]]
[[Bindishnýting]]
[[Myntbreytir]]
[[Downloada Skype]]
[[MSN á netinu, án forrits]]
[[Myndskeið]]
[[Politiken]]
[[Mogginn]]
[[BB]]
[[Skólinn minn]]
[[Senda frítt SMS]]
[[Senda frítt SMS í dönsk nr]]

Tenglar
[[Sóley]] [[LINDALyngmo]] [[Bjöggi]] [[Fanndís&Steini]] [[LísAAlborg]] [[NONNI&HAUKUR fríka út í AFRIKU]] [[Greipsi]] [[Snævar]] [[UnnurDK]] [[BenniPenni]] [[Arna & Lára tala frá Madrid]] [['86 píur]] [[Helga frækna frænka í NZ]] [[OfurKonur]] [[einasannaANNA]] [[Árgangur '84]] [[Gullusnúll]] [[Helgi Þór]] [[Snævar og co]] [[Bogga]] [[Unnur&Steinar]] [[Anna&Gummi]] [[Erna&Margeir]] [[Óskarssystir]] [[HelgaOSLO]] [[Selma&Krissi]] [[Ásta Björg]] [[Dóristóri]] [[TINNA&ANNA tóku heiminn!!]] [[Sólveig María]] [[!ÍRIS!]] [['88 píur]] [[Vefmyndavél - Silfurtorg]] [[Benidikt&Sandra]] [[Flóra]] [[DKiddi]] [[Lísaskvísa]] [[Svanhildur og Sóley]] [[Skari hugsuður]] [[Söngdís-a]] [[Frú Hafdís]] [[Nonni norðursins]] [[Ingvarssveitin Bermuda]] [[Halldóbankó]] [[Ingibjörg]] [[LindaPÉ]] [[Sigurða]] [[Víkin - live]] [[FaðirBix]] [[Kristín Halla]] [[Tómas&Níels]] [[OLGAkureyri]] [[Edith]] [[Siggi Steini]] [[Tobbi/Dúddi/Fulli]] [[Birgitta]] [[María Kristjáns.]] [[Biggibiggs]] [[Mellur]] [[Matta Jersey]] [[SímaDenni&fjölsk.]] [[Svaka Tinna]] [[Adal Guate]] [[Skvísdís]] [[Dúnna]] [[Guðbjörg&Vera]] [[Solla og Steinka]] [[Hljómsveitin The Nevolution]] [[Kata & Steini fóru í heimsreisu]] [[Óttar, Bjarni, Röggi]] [[Gemlingar]] [[Kristinn bróðir]] [[Telmalalala]] [[Brynjar Már]] [[Gulla súpermamma]] [[Edda Katkreisi]] [[Biggi blogg]] [[Albertína]] [[Rutla skutla]] [[heimshornaHaukur]] [[Ásta María]] [[Sólveig frænka]] [[Hrönn]] [[Aldís Finlandia]] [[Hljómsveitin Douglas Wilson]] [[Stubbur]] [[Vilborgar&Hjaltadóttir]] [[Fiffi]] [[Bríet]] [[Gylfi Ólafsson]]

++++++++
aðrir að skoða síðuna núna

© Hafdís Sunna Hermannsdóttir
MAIL: hafdissunna@simnet.is
MSN: sunnilius@hotmail.com
D A N M Ö R K / I S L A N D




Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"





14.2.05

Jæja, nú eru flestir búnir að taka svínslega spurningaleikinn í Sunnufræðum. Skorin mörkuðu allan skalann og voru alveg frá 10 stigum og upp í 100 - til hamingju Biggi með að vera lægstur og til hamingju Gulla með að vera hæst! Flestir klikkuðu á 1, 4, 7 og 9 spurningu.

1. "Vid Olga stofnudum og rákum:" b) Hressaklúbbinn. Þetta var þegar við vorum 8 eða 9 ára svo það er auðvitað ekki nema von að fólk hafi klikkað. En þetta var hinn besti klúbbur með fjölmörgum meðlimum. Hist var á laugardögum og gert eitthvað skemmtilegt sem við höfðum skipulagt. Dáldið skondið allt saman, því við Olga tókum hlutverkinu mjög alvarlega, fengum Dórótheu til að vera aðstoðarrekstrarstjóra, höfðum nafnakall o.s.frv.

4. "X fyllir mig viðbjóði". Möguleikar: a) Samloka með majonesi hituð í örbylgjuofni. Þegar ég var lítil þá smurði mamma alltaf samlokurnar mínar með majonesi, setti ost og skinku á og hitaði í örbylgjunni. Hún vill reyndar ekki viðurkenna það í dag að hún hafi byrlað mér kransæðakítti á hverjum degi. Skora á ykkur að prófa, þrátt fyrir að þetta hljómi vihihiðbjóðslega þá er þetta ótrúlega gott. b) Tequila. Ójá, ég hleyp framhjá Tequila hillunni í Ríkinu með lokuð augun svo ég æli ekki - finnst Tequila viðbjóður síðan ég drakk yfir mig af því þarsíðasta sumar. c) Seiseinei, túnfiskssamloka er ágæt. d) Soðinn bjór. Þegar ég sýð mér sparipulsur þá sýð ég þær upp úr bjór. Soðinn bjór er allt í lagi.

7. "Ég toli ekki...." Möguleikar: a) Frjókorn og slímkenndar lífverur. Eins og helmingur Íslendinga þá er ég með frjókornaofnæmi og eins og brotabrot fiskveiðiþjóðarinnar Íslendinga þá líkar mér alls ekki við slímkenndar lífverur og hef aldrei á ævinni losað fisk af öngli þrátt fyrir að hafa farið hundrað sinnum að veiða.

9. "Eitt af eftirtöldu gerir Sunna aldrei:" Möguleikar: a) Glápa. Sjitt já, ef ég sé eitthvað afspyrnu skrýtið eða fallegt þá glápi ég og stari án þess að taka eftir því og það er hræðilegt! b) Lesa skáldsögur. Jánei, þær les ég ekki, ekki nema ég sé skyldug til þess í skólanum. Dagdraumarnir svala mér, enda eru þeir mun skemmtilegri því þá er ég aðalpersónan. Haha. c) Hrækja. Ókei, ég viðurkenni reyndar að ég hræki eiginlega aldrei. En þar sem ég er orðin beitingarjaxl þá þykist ég auðvitað hrækja. d) Borða grænmeti. ?Gott er að borða grófa brauðið, gulræturnar, grænmetið?.? Æji var þessi Hálsaskógartexti ekki einhvern veginn svona. Þessi spurning var frekar ósanngjörn, viðurkenni það fúslega. Ef ég væri kennari og hefði spurt þessa spurningu á alvöru prófi þá hefðu nemendurnir sennilega tjúllast.

Je, takk fyrir að taka þátt. Posted by Hello


...sagði Hafdis Sunna klukkan 20:46
Comments: Skrifa ummæli
eXTReMe Tracker